Píus 12.
Páfi kaþólsku kirkjunnar frá 1939 til 1958 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Píus 12. (2. mars 1876 – 9. október 1958), fæddur undir nafninu Eugenio Maria Giuseppe Giovanni Pacelli, var páfi kaþólsku kirkjunnar frá 1939 til 1958. Píus var páfi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og framganga hans á stríðsárunum hefur um margt verið umdeild. Andstæðingar Píusar hafa sér í lagi gagnrýnt hann fyrir meint aðgerðarleysi hans á meðan á helförinni stóð og gengið svo langt að uppnefna hann „páfa Hitlers“. Píus á sér þó einnig marga málsvara sem benda á að þótt hann hafi ekki opinberlega fordæmt Hitler eða Mussolini á stríðsárunum hafi kirkjan á páfatíð hans unnið hörðum höndum á bak við tjöldin við að bjarga lífum evrópskra gyðinga.
Staðreyndir strax Forveri, Eftirmaður ...
Píus 12. | |
---|---|
Páfi | |
Í embætti 2. mars 1939 – 9. október 1958 | |
Forveri | Píus 11. |
Eftirmaður | Jóhannes 23. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 2. mars 1876 Róm, Ítalíu |
Látinn | 9. október 1958 (82 ára) Castel Gandolfo, Ítalíu |
Þjóðerni | Ítalskur (með vatíkanskan ríkisborgararétt) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Undirskrift |
Loka