Benito Mussolini
Ítalskur einræðisherra og fasistaleiðtogi (1883-1945) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Benito Amilcare Andrea Mussolini ▶ (29. júlí 1883 í Predappio nærri Forlì á Ítalíu – 28. apríl 1945 Giulino di Mezzegra nærri Como á Ítalíu) var ítalskur blaðamaður, rithöfundur, stjórnmálamaður og að lokum einræðisherra sem ríkti yfir Ítalíu á árunum 1922 – 1943. Hann var sjálfur helsti kenningasmiður ítalska fasismans. Undir hans stjórn varð Ítalía að fasistaríki þar sem ríkti flokksræði, ritskoðun og markviss útskúfun allrar stjórnarandstöðu. Þegar hann gerðist bandamaður Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni varð Ítalía eitt af skotmörkum bandamanna. Innrás bandamanna á Suður-Ítalíu varð að lokum til þess að hann missti völdin og var á endanum handtekinn nálægt Mílanó (þar sem hann var á flótta til Sviss) og tekinn af lífi af flokki ítalskra andspyrnumanna.
Benito Mussolini | |
---|---|
Forsætisráðherra Ítalíu | |
Í embætti 31. október 1922 – 25. júlí 1943 | |
Þjóðhöfðingi | Viktor Emmanúel 3. |
Forveri | Luigi Facta |
Eftirmaður | Pietro Badoglio |
Leiðtogi Sósíal-fasíska lýðveldisins | |
Í embætti 23. september 1943 – 25. apríl 1945 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. júlí 1883 Predappio, Ítalíu |
Látinn | 28. apríl 1945 (61 árs) Giulino di Mezzegra, Ítalíu |
Dánarorsök | Tekinn af lífi |
Stjórnmálaflokkur | Ítalski fasistaflokkurinn |
Maki | Donna Rachele Mussolini |
Börn | Vittorio og Romano Mussolini, og dóttir hans Edda. Þriðji sonur hans, Bruno, dó í flugslysi 7. ágúst 1941 |
Starf | Stjórnmálamaður, fréttamaður, rithöfundur, kennari |
Þekktur fyrir | Að stjórna Ítalíu í seinni heimstyrjöldinni og að vera einn af upphafsmönnum fasisma |
Undirskrift |