Konungsríkið Ítalía
From Wikipedia, the free encyclopedia
Konungsríkið Ítalía (ítalska: Regno d’Italia) var ríki sem var stofnað árið 1861 þegar Viktor Emmanúel 2., konungur Sardiníu, sameinaði allan Ítalíuskaga undir sinni stjórn. Ríkið var þingbundin konungsstjórn sem náði yfir Ítalíu frá 1861 þar til Ítalía varð lýðveldi árið 1946. Tórínó var höfuðborg til ársins 1864, en þá var höfuðborgin flutt til Flórens og síðan til Rómar árið 1871. Frá 1922 til 1943 var Ítalía fasistaríki undir stjórn forsætisráðherrans Benito Mussolini. Ítalir kusu í þjóðaratkvæðagreiðslu að leggja niður konungdæmið og gerast lýðveldi árið 1946.
Staðreyndir strax
Konungsríkið Ítalía | |
Regno d'Italia | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: FERT (kjörorð Savojaættarinnar) | |
Þjóðsöngur: (1861–1943, 1944–1946) Marcia Reale d'Ordinanza (1943–1944) La Leggenda del Piave | |
Höfuðborg | Tórínó (1861–1865) Flórens (1865–1871) Róm (1871–1946) |
Opinbert tungumál | Ítalska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn (1861–1922; 1943–1946) Fasískt einræði (1922–1943) |
Konungur | Viktor Emmanúel 2. (1861–1878) Úmbertó 1. (1878–1900) Viktor Emmanúel 3. (1900–1946) Úmbertó 2. (1946) |
Forsætisráðherra | Cavour greifi (1961; fyrstur) Benito Mussolini (1922–1943) Alcide De Gasperi (1945–1946; síðastur) |
Nýtt ríki | |
• Sameining Ítalíu | 17. mars 1861 |
• Róm innlimuð | 20. september 1870 |
• Rómargangan | 31. október 1922 |
• Lýðveldi stofnað | 2. júní 1946 |
Flatarmál • Samtals |
310.190 km² |
Mannfjöldi • Samtals (1936) • Þéttleiki byggðar |
42.993.602 138,6/km² |
Gjaldmiðill | Líra |
Ekið er | Hægra megin |
Loka