Norðurlandaráð
From Wikipedia, the free encyclopedia
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þingmanna Norðurlandanna sem var stofnað árið 1952 eftir seinni heimsstyrjöldina. Á þinginu sitja 87 fulltrúar frá norrænu löndunum fimm og sjálfstjórnarsvæðunum þremur. Fulltrúarnir eru skipaðir af viðkomandi þingi eftir tillögum stjórnmálaflokka og eru þannig ekki lýðræðislega kjörnir.
Aðildarríki Norðurlandaráðs | |
Aðildarríki | 5 ríki: Danmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð 3 yfirráðasvæði: |
Höfuðstöðvar | Kaupmannahöfn |
Leiðtogar - Forseti - Forstjóri - Aðalritari |
Bryndís Haraldsdóttir Kristina Háfoss Karen Ellemann |
Fólksfjöldi - Samtals (2012) |
25.880.000 |
Stofnun - Norðurlandaráð - Norræna ráðherranefndin |
1952 1971 |
Gjaldmiðlar aðildarríkja | Dönsk króna (DKK) Evran (EUR) Íslensk króna (ISK) Norsk króna (NOK) Sænsk króna (SEK) |
Starf Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar grundvallast á Helsingforssamningnum sem undirritaður var 1962 og hefur verið uppfærður nokkrum sinnum síðan.
Aðalskrifstofa Norðurlandaráðs er í Kaupmannahöfn á sama stað og Norræna ráðherranefndin. Sendinefnd hvers lands hefur jafnframt sérstaka skrifstofu eða starfsmenn hjá þingi viðkomandi lands.
Störfum Norðurlandaráðs er stýrt af forsætisnefnd. Frá árinu 1996 hefur Norðurlandaráðsþing verið haldið árlega á haustin. Árið 2012 hélt Norðurlandaráð auk þess í fyrsta sinn árlegan Þemafund ráðsins.[1] Milli þinganna eru haldnir fundir um einstök málefni. Stjórnmálastarf Norðurlandaráðs fer fram í nefndum og hópum sem eru myndaðir af stjórnmálaflokkum.
Núverandi forseti Norðurlandaráðs er sænska þingkonan Jessica Polfjärd.
Norðurlandaráð veitir árlega eftirfarandi verðlaun:
- Verðlaun Norðurlandaráðs fyrir barna- og unglingabókmenntir
- Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
- Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
- Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
- Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Verðlaunaféð er 350.000 danskar krónur og er því er útdeilt á Norðurlandaráðsþingi sem haldið er á hverju hausti. Tilkynning og afhending á verðlaunum Norðurlandaráðs fer fram á Norðurlandaráðsþingi.
Svansmerkið hefur verið merki Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar frá árinu 1985. Það er hannað af finnska listamanninum Kyösti Varis.
Norðurlandaráð æskunnar tengist starfi Norðurlandaráðs og heldur sitt þing samtímis Norðurlandaráðsþingi.