Nýja-Sjáland
From Wikipedia, the free encyclopedia
Nýja-Sjáland (enska: New Zealand, maóríska: Aotearoa) er land í Eyjaálfu í suðvesturhluta Kyrrahafsins. Meginhluti ríkisins eru tvær eyjar; Norðurey eða Te Ika-a-Māui, og Suðurey eða Te Waipounamu, auk fjölda minni eyja. Nýja Sjáland er í Tasmanhafi í Suður-Kyrrahafi um 1.500 km austan við Ástralíu og um 1.000 km sunnan við Nýju-Kaledóníu, Fídjieyjar og Tonga. Vegna þess hve afskekkt landið er var það eitt síðasta byggilega landsvæðið sem menn námu. Þar þróaðist því sérstætt lífríki. Landfræðilega er Nýja-Sjáland mjög fjölbreytt vegna samblands landriss og eldvirkni. Hæsta fjall Nýja Sjálands heitir Mount Cook og er í Suður-Ölpunum.
Nýja-Sjáland | |
New Zealand (enska) Aotearoa (maóríska) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: God Defend New Zealand God Save the King | |
Höfuðborg | Wellington |
Opinbert tungumál | enska, maóríska, nýsjálenskt táknmál |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | Cindy Kiro |
Forsætisráðherra | Christopher Luxon |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
76. sæti 268.021 km² 1,6 |
Mannfjöldi • Samtals (2017) • Þéttleiki byggðar |
123. sæti 4.759.090 17,5/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2016 |
• Samtals | 173,2 millj. dala (67. sæti) |
• Á mann | 36.950 dalir (35. sæti) |
VÞL | 0.913 |
Gjaldmiðill | Nýsjálenskur dalur |
Tímabelti | UTC +12 (UTC +13 yfir sumarið) |
Ekið er | vinstri megin |
Þjóðarlén | .nz |
Landsnúmer | +64 |
Pólýnesar settust að á eyjunum á milli 1250 og 1300 e.Kr. og þróuðu þar sérstaka maóríska menningu. Hollenski landkönnuðurinn Abel Tasman sá eyjarnar fyrstur Evrópumanna árið 1642. Maórar gengu Breska heimsveldinu á hönd 1840 með Waitangi-friðarsamningnum. Árið eftir varð Nýja-Sjáland bresk nýlenda og hluti af Breska heimsveldinu. Árið 1907 varð Nýja-Sjáland sjálfstjórnarsvæði undir bresku krúnunni. Mikill meirihluti núverandi íbúa Nýja-Sjálands eru af evrópskum uppruna og enska er opinbert tungumál ásamt maórísku og nýsjálensku táknmáli. Tæplega 15% íbúa eru Maórar.
Nýja-Sjáland er þróað ríki og situr hátt á alþjóðlegum listum sem bera saman heilsu, menntun, efnahagsfrelsi og lífsgæði íbúa ólíkra landa. Frá 9. áratug 20. aldar hefur efnahagslíf Nýja-Sjálands smám saman verið að breytast úr miðstýrðu landbúnaðarhagkerfi í markaðshagkerfi sem byggist á þjónustu. Löggjafi Nýja-Sjálands er þing Nýja-Sjálands sem situr í einni deild, en framkvæmdavaldið er í höndum ríkisstjórnar Nýja-Sjálands. Forsætisráðherra Nýja-Sjálands er stjórnarleiðtogi. Þjóðhöfðingi landsins er Karl 3. Bretakonungur og landstjóri Nýja-Sjálands fulltrúi hans. Nýja-Sjáland skiptist í 11 héruð og 67 umdæmi. Konungsríkið Nýja-Sjáland nær auk þess yfir hjálenduna Tókelá, sjálfstjórnarlöndin Cooks-eyjar og Niue, og Rosshjálenduna sem er landakrafa Nýja-Sjálands á Suðurskautslandinu. Nýja-Sjáland er aðili að Sameinuðu þjóðunum, Breska samveldinu, ANZUS-varnarsamstarfinu, Efnahags- og framfarastofnuninni, Samstarfi Kyrrahafseyja og Efnahagssamstarfi Asíu- og Kyrrahafsríkjanna.