Meiji keisari
Keisari Japans frá 1867 til 1912 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Meiji keisari (明治天皇 á japönsku letri) (3. nóvember 1852 – 30. júlí 1912) eða Meiji mikli (明治大帝) var 122. keisari Japans samkvæmt hefðbundinni talningu. Hann ríkti frá 3. febrúar 1867 til dauðadags þann 30. júlí árið 1912. Valdatíð hans var tími mikilla breytinga í Japan er þjóðin fór í gegnum iðnbyltingu og breyttist úr lénskerfi í kapítalískt heimsveldi.
| ||||
Meiji 明治天皇 | ||||
Ríkisár | 3. febrúar 1867 – 30. júlí 1912 | |||
Skírnarnafn | Mutsuhito (睦仁) | |||
Fæddur | 3. nóvember 1852 | |||
Kýótó, Japan | ||||
Dáinn | 30. júlí 1912 (59 ára) | |||
Meiji-höll, Tókýó, Japan | ||||
Gröf | Fushimi Momoyama no Misasagi (伏見桃山陵), Kýótó | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Kōmei keisari | |||
Móðir | Nakayama Yoshiko | |||
Keisaraynja | Shōken | |||
Börn | Yoshihito, Masako, Fusako, Nobuko, Toshiko |
Þegar Meiji fæddist árið 1852 var Japan einangrað, óiðnvætt lénsveldi undir stjórn Tokugawa-sjógunaveldisins sem réð yfir meira en 250 ómiðstýrðum fylkjum. Þegar hann lést árið 1912 hafði Japan farið í gegn um stjórnkerfis-, samfélags- og iðnbyltingu heima fyrir og hafði skapað sér sess sem eitt helsta heimsveldi á alþjóðavísu. The New York Times lýsti útför hans árið 1912 sem svo: „Munurinn milli þess sem kom á undan líkbílnum og á eftir honum var sláandi. Á undan kom gamla Japan; á eftir hið nýja Japan“.[1]
Í Japan er sitjandi keisari ávallt kallaður „keisarinn“ en látinn keisari fær annað nafn, sem er einnig nafn tímabilsins sem valdatíð hans spannaði. Þar sem hann réð á Meiji-tímabilinu er keisarinn eftir dauða sinn þekktur sem Meiji-keisarinn eða Meiji keisari. Eiginnafn hans, sem er ekki notað í neinu formlegu né opinberu samhengi að undirskrift hans undanskyldri, var Mutsuhito (睦仁).