Ludwig Quidde
Þýskur stjórnmálamaður og sagnfræðingur (1858-1941) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ludwig Quidde (23. mars 1858 – 4. mars 1941) var þýskur stjórnmálamaður og friðarsinni sem varð þekktur fyrir gagnrýni sína á hendur Vilhjálmi 2. Þýskalandskeisara. Ferill Quidde í þýskum stjórnmálum spannaði fjögur tímabil í sögu Þýskalands: valdatíð Bismarcks (til ársins 1890), keisaratíð Vilhjálms 2. (1888–1918), tíma Weimar-lýðveldisins (1918-1933) og loks tíma þriðja ríkisins. Quidde hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1927 ásamt Frakkanum Ferdinand Buisson.[2]
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Ludwig Quidde | |
---|---|
Fæddur | 23. mars 1858 |
Dáinn | 4. mars 1941 (82 ára) |
Þjóðerni | Þýskur |
Menntun | Georg-August-háskólinn í Göttingen |
Störf | Stjórnmálamaður, sagnfræðingur |
Flokkur | Þýski þjóðarflokkurinn, Þýski lýðræðisflokkurinn, Róttæki lýðræðisflokkurinn |
Maki | Margarethe Quidde (g. 1882; d. 1940[1]) |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1927) |
Loka