Þjóðfrelsishreyfing Tígra
Eþíópísk stjórnmálahreyfing / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þjóðfrelsishreyfing Tígra (tígrinja: ህዝባዊ ወያነ ሓርነት ትግራይ, hizbāwī weyānē ḥārinet tigrāy) er vinstrisinnuð hernaðarhreyfing og fyrrum stjórnmálaflokkur í Eþíópíu. Í daglegu tali er hreyfingin gjarnan kölluð TPLF eftir nafni sínu á ensku, Tigray People's Liberation Front. Flokkurinn er einnig kallaður Hehewat, sem byggist á skammstöfun á opinberu heiti hans: ህወሓት.
Þjóðfrelsishreyfing Tígra ህዝባዊ ወያነ ሓርነት ትግራይ | |
---|---|
Leiðtogi | Debretsion Gebremichael |
Stofnár | 18. febrúar 1975; fyrir 49 árum (1975-02-18) |
Höfuðstöðvar | Mekelle |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Þjóðernishyggja tígra, þjóðflokkamiðuð sambandsstjórnarstefna, jafnaðarstefna Áður: Kommúnismi, marx-lenínismi, hoxhaismi |
Heitið Weyane (tígrinja: ወያነ) eða Weyané (amharíska: ወያኔ) er notað bæði um hermenn hreyfingarinnar og um flokkinn í heild sinni. Orðið hefur bæði jákvæða og neikvæða skírskotun.
Hreyfingunni var stýrt af Meles Zenawi frá 1989 þar til hann lést árið 2012. TPLF réð í reynd yfir Eþíópíu frá 1991 til 2018 en hefur átt í vopnuðum átökum gegn nýrri ríkisstjórn landsins frá árinu 2020. Núverandi stjórnvöld Eþíópíu skilgreina TPLF sem hryðjuverkasamtök.[1][2]