Víetnamstríðið
Stríð í Suðaustur-Asíu 1959-1975 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Víetnamstríðið er oftast notað yfir þau hernaðarátök sem áttu sér staðar í Víetnam frá 1959 til 1975. Hernaðarsvæðið var þó engan veginn bundið við Víetnam heldur náði einnig yfir Laos og Kambódíu. Þessi átakatími hefur einnig verið nefndur Seinni Indókínastyrjöldin og er hugtakið Fyrri Indókínastyrjöldin notað um baráttuna gegn Frakklandi 1945 til 1954. Í þessari seinni styrjöld tókust á annars vegar her Norður-Víetnam, Þjóðarfylkingin fyrir frelsun Suður-Víetnam, einnig þekkt sem Viet-Cong, og bandamenn þeirra og hins vegar her Suður-Víetnam og bandamenn hans, einkum Bandaríkjamenn. Þegar átökunum lauk 1975 höfðu um 3 til 4 milljónir Víetnama látið lífið, 1,5 til 2 milljóna íbúa Laos og Kambódíu, og þar að auki um 60.000 bandarískir hermenn.[1] Endaði þar með yfir hundrað ára vopnuð barátta Víetnama gegn erlendum hersveitum.
Víetnamstríðið | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af Kalda stríðinu | |||||||
Kofi í eigu Viet-Cong-hreyfingarinnar brennur eftir sprengjuárás Bandaríkjamanna. | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
| |||||||
Leiðtogar | |||||||
Mannfall og tjón | |||||||
Um 667.130–951.895 hermenn drepnir. | Um 333,620–392,364 hermenn drepnir. | ||||||
|
Meginorsök stríðsins var tvískipting landsins eftir fyrri Indókínastyrjöldina 1946 til 1954 þar sem sjálfstæðissinnum, Viet-Minh, tókst ekki að ná völdum í suðurhluta landsins í baráttu þeirra fyrir sjálfstæði landsins frá Frakklandi. Að sumu leyti var Víetnamstríðið eins konar leppstríð þar sem risaveldin í Kalda stríðinu tókust á óbeint gegnum bandamenn sína í Víetnam.
Aðalbandamenn Norður-Víetnam og skæruliða Þjóðfylkingarinnar voru annars Sovétríkin og Kínverska alþýðulýðveldið, en aðalbandamenn stjórnarinnar í Suður-Víetnam voru Bandaríkin, Ástralía, Taíland, Filippseyjar og Nýja-Sjáland. Aðallega voru það þó Bandaríkin sem sendu stóra herflokka til að taka þátt í átökunum í Víetnam frá 1965.
Víetnamstríðinu lauk 30. apríl 1975 með falli Saígon í hendur hers Norður-Víetnama.