Thurgood Marshall
Bandarískur hæstaréttardómari / From Wikipedia, the free encyclopedia
Thurgood Marshall (2. júlí 1908 – 24. janúar 1993) var bandarískur lögmaður og baráttumaður borgaralegra réttinda, sem starfaði innan Hæstarétts Bandaríkjanna frá október 1967 fram í október 1991. Marshall var jafnframt fyrsti einstaklingurinn af afrískum uppruna til að gegna þar embætti dómara.
Thurgood Marshall | |
---|---|
Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna | |
Í embætti 30. ágúst 1967 – 1. október 1991 | |
Skipaður af | Lyndon B. Johnson |
Forveri | Tom C. Clark |
Eftirmaður | Clarence Thomas |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 2. júlí 1908 Baltimore, Maryland, Bandaríkjunum |
Látinn | 24. janúar 1993 (84 ára) Bethesda, Maryland, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Vivian Buster Burey (g. 1929; d. 1955) Cecilia Suyat (g. 1955) |
Börn | 2 |
Háskóli | Lincoln-háskóli Howard-háskóli |
Starf | Lögfræðingur, dómari |
Marshall stundaði lögfræðinám við Howard University School of Law og útskrifaðist þaðan árið 1933. Að námi loknu setti hann af stað sína eigin lögfræðistofu innan Baltimore í Maryland-fylki áður en hann stofnaði NAACP Legal Defense and Educational Fund í New York-borg. Sú stofnun er í dag í fremsta flokki samtaka sem taka fyrir borgaraleg réttindi sem og lög fyrirtækja í Bandaríkjunum. Þar starfaði Thurgood sem framkvæmdastjóri stofnunarinnar. Á þeim tíma mætti hann fyrir Hæstarétt með nokkur þekkt mál. Má þar til að mynda málin Smith gegn Allwright, Shelley gegn Kraemer, og Brown gegn Menntamálaráðneyti Topeka.
Það var svo árið 1961 að þáverandi forseti Bandaríkjanna John F. Kennedy skipaði Marshall í United States Court of Appeals for the Second Circuit. Fjórum árum seinna eða árið 1965 gerir þáverandi forseti Bandaríkjanna, Lyndon B. Johnson, Marshall að ríkislögmanni Bandaríkjanna (e. Solicitor General). Árið 1967 tilnefndi Johnson svo Marshall sem arftaka fráfarandi hæstaréttalögmanns Tom C. Clark. Marshall lauk svo starfsferli sínum eins og áður sagði í október árið 1991, á þeim tíma þegar George H. W. Bush gegndi forsetaembætti.[1]