Spendýr
From Wikipedia, the free encyclopedia
Spendýr (fræðiheiti: Mammalia) eru flokkur seildýra í undirfylkingu hryggdýra sem einkennist af því að vera með mjólkurkirtla, sem kvendýrin nota til að framleiða mjólk til að næra ungviði; feld eða hár og innverminn líkama (heitt blóð). Heilinn stýrir blóðrásarkerfinu, þar á meðal hjarta með fjögur hólf. Um 5.500 tegundir spendýra eru þekktar og skiptast þær í um 1.200 ættkvíslir, 152 ættir og 26 ættbálka.[1]
Staðreyndir strax Spendýr Tímabil steingervinga: Síðtríastímabilið – nútími, Vísindaleg flokkun ...
Spendýr Tímabil steingervinga: Síðtríastímabilið – nútími | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Maasaigíraffi (Giraffa camelopardalis) | ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Ættbálkar | ||||||||
| ||||||||
Loka