Simón Bolívar
Frelsishetja Suður-Ameríku (1783-1830) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Simón José Antonio de la Santísima Trinidad Bolívar y Ponte Palacios y Blanco (f. 24. júlí, 1783 d. 17. desember, 1830) var frelsishetja Suður Ameríku. Hann leiddi sjálfstæðishreyfingu og sjálfstæðisbaráttu á þeim slóðum sem nú eru löndin Venesúela, Kólumbía, Ekvador, Perú, Panama og Bólivía. Þar, líkt og í öðrum löndum Rómönsku Ameríku, er hann talinn mikil hetja. Hann fæddist í Karakas. Árið 1802, kvæntist hann Maríu Teresu Rodríguez del Toro y Alaysa, hún lést ári síðar. Hann var fyrsti forseti Lýðveldisins Bólivíu er það var stofnað 1825. Segja má að hann sé eins konar Jón Sigurðsson eða George Washington Rómönsku Ameríku, en þar er hann stundum kallaður „El Libertador“, eða Frelsarinn.
Staðreyndir strax Forseti Venesúela, Forveri ...
Simón Bolívar | |
---|---|
Forseti Venesúela | |
Í embætti 6. ágúst 1813 – 16. júlí 1814 | |
Forveri | Francisco de Miranda |
Eftirmaður | Hann sjálfur |
Í embætti 7. ágúst 1817 – 24. febrúar 1819 | |
Forveri | Hann sjálfur |
Eftirmaður | José Antonio Páez |
Forseti Stóru-Kólumbíu | |
Í embætti 24. febrúar 1819 – 4. maí 1830 | |
Varaforseti | Francisco de Paula Santander |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Domingo Caicedo |
Forseti Bólivíu | |
Í embætti 12. ágúst 1825 – 29. desember 1825 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Antonio José de Sucre |
Forseti Perú | |
Í embætti 17. febrúar 1824 – 28. janúar 1827 | |
Forveri | José Bernardo de Tagle |
Eftirmaður | Andrés de Santa Cruz |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 24. júlí 1783 Karakas, Venesúela, spænska heimsveldinu |
Látinn | 17. desember 1830 (47 ára) Santa Marta, Stóru-Kólumbíu |
Dánarorsök | Berklar |
Þjóðerni | Venesúelskur |
Maki | María Teresa Rodríguez del Toro y Alaysa (d. 22. janúar 1803) Manuela Sáenz (í sambandi 1822 – 1830) |
Starf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka