Senegal
From Wikipedia, the free encyclopedia
Senegal er land í Vestur-Afríku sem á landamæri að Máritaníu í norðri, Malí í austri og Gíneu og Gíneu-Bissá í suðri. Auk þess skagar Gambía inn í landið úr vestri. Senegal á strönd að Atlantshafi í vestri og um 500km undan strönd þess eru Grænhöfðaeyjar sem heita eftir vestasta odda Senegal, Grænhöfða (Cap-Vert). Loftslag í Senegal er hitabeltisloftslag með tvær árstíðir: þurrkatíma og regntíma.
Lýðveldið Senegal | |
République du Sénégal | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Un Peuple, Un But, Une Foi (franska) Ein þjóð, eitt markmið, ein trú | |
Þjóðsöngur: Pincez Tous vos Koras, Frappez les Balafons | |
Höfuðborg | Dakar |
Opinbert tungumál | franska |
Stjórnarfar | Forsetaræði |
Forseti | Bassirou Diomaye Faye |
Forsætisráðherra | Ousmane Sonko |
Sjálfstæði | |
• stofnun lýðveldis | 25. nóvember 1958 |
• frá Frakklandi | 4. apríl 1960 |
• úrsögn úr Malísambandinu | 20. ágúst 1960 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
86. sæti 196.712 km² 2,1 |
Mannfjöldi • Samtals (2023) • Þéttleiki byggðar |
66. sæti 18.384.660 93,3/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 66,438 millj. dala (99. sæti) |
• Á mann | 3.675 dalir (158. sæti) |
VÞL (2019) | 0.512 (168. sæti) |
Gjaldmiðill | Vesturafrískur CFA-franki (XOF) |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .sn |
Landsnúmer | +221 |
Á 17. og 18. öld stofnuðu Evrópuveldin nokkra verslunarstaði á strönd Senegal. Árið 1677 lögðu Frakkar eyjuna Gorée undir sig en þar var miðstöð fyrir þrælaverslun. Á 6. áratug 19. aldar hófu Frakkar svo að leggja landið undir sig og Senegal varð hluti af Frönsku Vestur-Afríku. Landið hlaut sjálfstæði árið 1959. Fyrsti forseti landsins var Léopold Senghor sem ríkti til 1980.
Senegal á aðild að Afríkusambandinu, Sameinuðu þjóðunum, Efnahagsbandalagi Vestur-Afríkuríkja (ECOWAS) og Bandalagi ríkja í Sahel-Sahara.