Máritanía
land í Norður-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Máritanía (arabíska موريتانيا Mūrītānyā; berbíska Muritanya eða Agawej; wolof Gànnaar; soninke Murutaane; pulaar Moritani) er land í Norður-Afríku, en er stundum einnig talið til Vestur-Afríku þar sem það tilheyrir bæði Magrebsvæðinu og Sahelsvæðinu. Það á strandlengju að Atlantshafi í vestri og landamæri að Vestur-Sahara í norðri, Alsír í norðaustri, Malí í austri og Senegal í suðri. Ríkið dregur nafn sitt af hinu forna konungsríki Berba, Máretaníu. Höfuðborg og stærsta borg Máritaníu er Núaksjott.
Íslamska lýðveldið Máritanía | |
الجمهورية الإسلامية الموريتانية Al-Jumhuriyah al-Islamiyah al-Muritaniyah République Islamique de Mauritanie | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: شرف إخاء عدل (arabíska) Heiður, bræðralag, réttlæti | |
Þjóðsöngur: Bilada-l ubati-l hudati-l kiram | |
Höfuðborg | Núaksjott |
Opinbert tungumál | arabíska, franska |
Stjórnarfar | Íslamskt lýðveldi |
Forseti | Mohamed Ould Ghazouani |
Forsætisráðherra | Mohamed Ould Bilal |
Sjálfstæði | |
• frá Frakklandi | 28. nóvember 1960 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
28. sæti 1.030.000 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
127. sæti 4.403.313 3,4/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2018 |
• Samtals | 18,117 millj. dala (134. sæti) |
• Á mann | 4.563 dalir (140. sæti) |
VÞL (2019) | 0.546 (157. sæti) |
Gjaldmiðill | Ouguiya (MRO) |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .mr |
Landsnúmer | +222 |
Þann 6. ágúst 2008 var gerð herforingjabylting í landinu og hershöfðinginn Mohamed Ould Abdel Aziz tók við völdum. Hann sagði af sér herforingjatign árið eftir til að taka þátt í forsetakosningum sem hann vann. Forsetakosningar í Máritaníu 2019 voru fyrsta friðsamlega valdatilfærslan í landinu frá sjálfstæði.
Máritanía er rík af náttúruauðlindum en landið er þó enn fátækt. Flestir landsmenn vinna við landbúnað, námugröft og í olíuvinnslu, auk fiskveiða.
Þrælahald er útbreitt vandamál í Máritaníu, en áætlað er að 600.000 manns, tæplega 20% íbúa, lifi við þrældóm. Þrælahald hefur verið bannað með lögum í landinu oftar en einu sinni, síðast árið 2007.