Sahrawi-lýðveldið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sahrawi-lýðveldið (arabíska: الجمهورية العربية الصحراوية الديمقراطية al-Jumhūrīyah al-'Arabīyah aṣ-Ṣaḥrāwīyah ad-Dīmuqrāṭīyah; spænska: República Árabe Saharaui Democrática) er land sem nýtur viðurkenningar víða um heim og gerir tilkall til Vestur-Sahara, en ræður í reynd aðeins yfir um fimmtungi landsins austast. Marokkó hefur lagt undir sig meirihluta svæðisins frá 1979. Frá 1884 til 1975 var landið spænska nýlendan Spænska Sahara. Sahrawi-lýðveldið er annað tveggja Afríkulanda þar sem spænska er töluð að ráði. Hitt er Miðbaugs-Gínea.
الجمهورية العربية الصحراوية الديمقراطية Al-Jumhūrīyya al-`Arabīyya as-Saharāwīyya ad-Dīmuqrātīyya Sáhara Occidental | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Yā Banīy As-Saharā | |
Höfuðborg | El Aaiún (yfirlýst) |
Opinbert tungumál | arabíska og spænska |
Stjórnarfar | Flokksræði |
Forseti (í útlegð) | Brahim Ghali |
Forsætisráðherra (í útlegð) | Mohamed Wali Akeik |
Umdeilt sjálfstæði | |
• Frá Spáni | 14. nóvember 1975 |
• Stofnun lýðveldis | 27. febrúar 1976 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
83. sæti 266.000 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2011) • Þéttleiki byggðar |
182. sæti 507.160 1,9/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2007 |
• Samtals | 0,906 millj. dala |
• Á mann | 2.500 dalir |
Gjaldmiðill | alsírskur dínar (de facto) |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .eh |
Landsnúmer | +212 (sama og Marokkó) |
Sjálfstæðishreyfingin Polisario lýsti yfir stofnun sjálfstæðs lýðveldis í Bir Lehlou 27. febrúar 1976. Samtökin ráða nú yfir um 20-25% þess landsvæðis sem þau gera tilkall til.[1] Þau kalla landið sem þau stjórna „frelsuðu landsvæðin“ eða „Frísvæðið“. Marokkó kallar landið í Vestur-Sahara sem það ræður yfir „Suðurhéruðin“. Polisario lítur svo á að þau héruð séu hernumin. Yfirlýst höfuðborg Sahrawi-lýðveldisins er fyrrum höfuðborg nýlendunnar, El Aaiún en tímabundin höfuðborg var flutt frá Bir Lehlou til Tifariti árið 2008. Raunverulegt stjórnarsetur Sahrawi-lýðveldisins er í flóttamannabúðum við Tindouf í Alsír.
Sahrawi-lýðveldið á formlegum samskiptum við um 30 ríki og er fullgildur meðlimur Afríkusambandsins.