Marokkó
land í Norður-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Marokkó (arabíska: المغرب al-Maġrib; berbíska: ⵍⵎⴰⵖⵔⵉⴱ Lmaġrib) er konungsríki í Norður-Afríku með strandlengju meðfram Atlantshafi í vestri og Miðjarðarhafi í norðri. Landamæri liggja að Vestur-Sahara í suðri, og Alsír í austri, en landamærin að Alsír eru lokuð vegna átaka um yfirráð yfir Vestur-Sahara. Arabískt nafn landsins merkir „vesturríkið“ eða „vestrið“, en Maghreb er líka heiti á norðvesturhluta Afríku.
Konungsríkið Marokkó | |
المملكة المغربية Al Mamlaka al-Maghrebiya | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: الله، الوطن، الملك Allah, al Waţan, al Malik (arabíska) Guð, Landið, Konungurinn | |
Þjóðsöngur: Hymne Cherifien | |
Höfuðborg | Rabat |
Opinbert tungumál | arabíska, tamazight |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Múhameð 6. |
Forsætisráðherra | Aziz Akhannouch |
Stofnun | |
• Ídrisætt | 788 |
• Alavíætt | 1631 |
• Verndarríki Frakklands | 30. mars 1912 |
• Sjálfstæði | 7. apríl 1956 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
57. sæti 446.550 (710.850 með Vestur-Sahara) km² 0,06 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
39. sæti 37.112.080 50/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 332,358 millj. dala (58. sæti) |
• Á mann | 9.339 dalir (153. sæti) |
VÞL (2019) | 0.686 (121. sæti) |
Gjaldmiðill | díram |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .ma |
Landsnúmer | ++212 |
Marokkó gerir tilkall til landsvæðisins Vestur-Sahara sem hefur verið undir marokkóskri stjórn að meira eða minna leyti síðan 1975, en þau yfirráð hafa ekki verið viðurkennd af alþjóðasamfélaginu. Sé Vestur-Sahara talin til Marokkó, eru ennfremur landamæri við Máritaníu til suðausturs, en annars liggja Marokkó og Máritanía ekki saman.
Spænsku útlendurnar Ceuta og Melilla eru á strönd Marokkó sem gerir tilkall til þeirra, auk eyjunnar Perejil sem er aðeins 200 metra frá strönd Marokkó í Gíbraltarsundi. Undan vesturströnd Marokkó eru hinar spænsku Kanaríeyjar en landhelgismörkin milli Marokkó og eyjanna eru líka umdeild.
Í Marokkó ríkir þingbundin konungsstjórn þar sem marokkóska þingið er þjóðkjörið en konungur Marokkó hefur mikil völd, sérstaklega í málefnum hersins, utanríkismálum og trúmálum. Konungur getur gefið út konunglegar tilskipanir sem hafa lagagildi og leyst þingið upp.