Ross Perot
Bandarískur viðskiptamaður og forsetaframbjóðandi (1930-2019) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Henry Ross Perot (27. júní 1930 – 9. júlí 2019) var bandarískur athafnamaður, milljarðamæringur og mannúðarvinur. Hann var stofnandi og framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækjanna Electronic Data Systems og Perot Systems. Perot bauð sig sjálfstætt fram í bandarísku forsetakosningunum 1992 og fyrir Umbótaflokkinn í forsetakosningunum 1996. Í báðum kosningunum vann hann engin fylki og hlaut enga kjörmenn en framboð hans voru þó með þeim fylgismestu utan stóru stjórnmálaflokkanna í sögu Bandaríkjanna.
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Ross Perot | |
---|---|
Fæddur | 27. júní 1930 |
Dáinn | 9. júlí 2019 (88 ára) |
Dánarorsök | úr hvítblæði[1] |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Háskólinn í Texarkana Bandaríski flotaskólinn |
Flokkur | Umbótaflokkurinn (1995–2000) Repúblikanaflokkurinn (2000–2019) |
Maki | Margot Birmingham (g. 1956) |
Börn | 5 |
Undirskrift | |
Loka