Ralph Nader
Bandarískur lögfræðingur og neytendatalsmaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ralph Nader (f. 27. febrúar 1934) er bandarískur neytendatalsmaður, lögfræðingur og rithöfundur af líbönskum ættum. Hann var fæddur 27. febrúar árið 1934 í bænum Winsted í Connecticut. Árið 1958 útskrifaðist hann með lögfræðigráðu frá Harvard-háskóla. Árið 1959 starfaði hann sem lögfræðingur í Hartford í Connecticut og sem fyrirlesari um sögu og stjórnmál í Hartford-háskóla frá 1961-1963.
Ralph Nader | |
---|---|
Fæddur | 27. febrúar 1934 (1934-02-27) (90 ára) |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Princeton-háskóli Harvard-háskóli |
Undirskrift | |
Árið 1965 gefur hann út bókina Unsafe at any speed (ísl. Óöruggur á hvaða hraða sem er). Þessi bók var formleg ákæra á hendur bílaiðnaðarins í Detroit, þar sem hann ásakaði framleiðendur um að setja stíl fram yfir öryggi þegar bílarnir voru hannaðir. Í kjölfarið, árið 1966, skrifaði Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseti undir og tók í gildi þjóðarlög um öryggi umferðar og vélknúinna ökutækja (e. National Traffic and Motor Vehicle Safety Act).
Á ferli sínum sem neytendatalsmaður stofnaði Nader mörg samtök, þ.á m. Center for Study of Responsive Law, Public Interest Research Group, Center for Auto Safety, Public Citizen, Clean Water Action Project, Disability Rights Center og mörg fleiri.[1]