Ríkisútvarpið
Hljóðvarp, sjónvarp og vefmiðill á vegum Íslenska ríkisins / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ríkisútvarpið ohf. (skammstafað RÚV) er opinbert hlutafélag staðsett á Íslandi, sem hóf göngu sína árið 1930 og sér um útsendingar á útvarpi og sjónvarpi. Útvarpsstjóri frá 2020 er Stefán Eiríksson.
Ríkisútvarpið ohf. | |
Rekstrarform | Opinbert hlutafélag |
---|---|
Slagorð | Útvarp allra landsmanna |
Hjáheiti | Útvarpið, RÚV |
Stofnað | 1930 (útvarp) 1966 (sjónvarp) |
Staðsetning | Efstaleiti 1 Reykjavík |
Lykilpersónur | Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri |
Starfsemi | Fjölmiðlun; útvarp, sjónvarp, fréttir |
Vefsíða | ruv.is |
Það sendir út eina sjónvarpsstöð sem heitir Sjónvarpið en er oft í daglegu tali kölluð Stöð 1 eða RÚV. Það rekur þrjár útvarpsstöðvar, Rás 1 sem einbeitir sér að dagskrárgerð um menningu af ýmsum toga, Rás 2 sem hefur það verksvið að fjalla um tónlist, dægurmál og fleira í þeim dúr og Rondó sem sendir stafrænt út á höfuðborgarsvæðinu og spilar klassíska tónlist og djass allan sólarhringinn. Einnig sendir ungmennaþjónustan RÚV Núll út tónlist á netinu allan sólarhringinn.
Einnig starfrækir RÚV fjórar deildir á landsbyggðinni sem sinna fréttaþjónustu á sínum svæðum og senda út staðbundna dagskrá á vissum tímum, deildirnar eru á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Þar að auki rekur Ríkisútvarpið frétta- og dagskrárvefinn ruv.is og textavarpið. Ríkisútvarpið er fjármagnað með auglýsingum en einkum framlagi úr ríkissjóði. Áður var innheimt afnotagjald sem öllum eigendum sjónvarps- og útvarpstækja bar skylda til að greiða en afnotagjöldin voru afnumin árið 2009 og upp tekinn nefskattur sem á að renna óskiptur í reksturinn.