Pinus gerardiana
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pinus gerardiana (úrdú: چلغوزا پائن, á persnesku þýðir það „40 hnetur í köngli“ :چهل و غوزه) er fura ættuð frá norðvestur Himalajafjöllum í austur Afghanistan, Pakistan, og norðvestur Indlandi, og vex í 1800 til 3350 metra hæð. Hún vex oft með Cedrus deodara og Pinus wallichiana.
Pinus gerardiana | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Pinus gerardiana í Franklin Park Conservatory, Columbus, Ohio | ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus gerardiana Wall. ex D. Don | ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Hún verður 10-20(-25) m há, með yfirleitt breiða og opna krónu með löngum uppréttum greinum. Hún verður þó nettari í þéttum skógum. Börkurinn er sléttur og flagnar, og sést þá í ljós-grágræna bletti, svipað hinni skyldu næfurfuru (Pinus bungeana). Smágreinarnar eru sléttar og ólífugrænar. Barrnálarnar eru 3 saman, 6–10 sm langar, stífar, gljáandi grænar að utan, með blágrænum loftaugarásum að innan; nálaslíðrin falla af á fyrsta ári. Könglarnir eru 10–18 sm langir, 9–11 sm breiðir opnir. Furuhneturnar eru svartar, 17–23 mm langar og 5–7 mm breiðar, með þunnri skel og leifar af væng.
Tegundin er skráð í minnháttar hættu, eða ógnað. Skógarhögg og miki valda lítilli endurnýjun, sem gæti að lokum valdið útrýmingu tegundarinnar. The Himachal Pradesh State Forest Department hefur reynt endurnýjun tegundarinnar. Hinsvegar hefur lifun smáplantna verið mjög léleg.
Fræðiheitið er til heiðurs Kapteini Patrick Gerard, Breskum foringja í Indlandi. Tegundin var fyrst reynd í Englandi 1839, þar sem hún vex vel í hlýrri og þurrari svæðum sunnantil, en er sjaldan plantað.
Litningatalan er 2n = 24.[4]