Píus 9.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Píus 9. (13. maí 1792 – 7. febrúar 1878), fæddur undir nafninu Giovanni Maria Mastai Ferretti, var páfi kaþólsku kirkjunnar frá 1846 til 1878.
Staðreyndir strax Forveri, Eftirmaður ...
Píus 9. | |
---|---|
Páfi | |
Í embætti 16. júní 1846 – 7. febrúar 1878 | |
Forveri | Gregoríus 16. |
Eftirmaður | Leó 13. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. maí 1792 Senigallia, Marche, Páfaríkinu |
Látinn | 7. febrúar 1878 (85 ára) Páfahöllinni, Róm, Ítalíu |
Þjóðerni | Ítalskur |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Undirskrift |
Loka
Píus var páfi í 32 ár, lengur en nokkur annar páfi í sögu kaþólsku kirkjunnar. Páfatíð hans var mikið umbrotaskeið, meðal annars vegna byltinganna 1848 og sameiningar Ítalíu. Ítölsku sjálfstæðisstríðin leiddu til þess að Páfaríkið glataði Rómarborg í hendur nýja ítalska konungsríkisins árið 1870. Píus neitaði þaðan í frá að stíga fæti út fyrir Páfagarð og kallaði sjálfan sig „fangann í Páfagarði“.
Píus er einnig þekktur fyrir að kalla saman fyrra Vatíkanþingið, sem stóð frá 1869 til 1870.