Nanjing
höfuðborg Jiangsu héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Nanjing, áður ritað Nanking á latnesku letri, er borg í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína sem stendur við bakka fljótsins Jangtse um 240 km vestan við Sjanghæ.
Staðreyndir strax 南京市, Land ...
Nanjing
南京市 | |
---|---|
Borg og undirhéraðsborg | |
Hnit: 32°03′41″N 118°45′49″A | |
Land | Kína |
Hérað | Jiangsu |
Stofnun | Óvíst (Yecheng, 495 f. Kr. Jinling-borg, 333 f. Kr.) |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Han Liming |
• Borgarstjóri | Chen Zhichang |
Flatarmál | |
• Samtals | 6,587 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 20 m |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 9.314.685 |
• Þéttleiki | 1.237/km2 |
Póstnúmer | 210000–211300 |
Tímabelti | UTC+08:00 |
Vefsíða | http://www.nanjing.gov.cn/ |
Loka
Borgin er höfuðborg kínverska héraðsins Jiangsu. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Nanjing um 9,3 milljónir manna.[1] Allt borgarsvæðið nær yfir 6.596 km²
Nafn borgarinnar merkir „syðri höfuðborgin“ og vísar til þess að borgin var höfuðborg Kína frá 317–582, 1368–1421 og 1928–1949. Lýðveldið Kína á Taívan leit enn formlega á Nanjing sem höfuðborg Kína allt fram á tíunda áratuginn, en í reynd hefur höfuðborg Lýðveldisins verið í Taípei frá lokum kínversku borgarastyrjaldarinnar árið 1949.