Móðurmál
tungumál sem einhver hefur lært sem barn og er alinn upp við / From Wikipedia, the free encyclopedia
Móðurmál er hugtak sem getur hvortveggja þýtt tungumál sem einhver hefur lært sem barn og er alinn upp við en er einnig haft um ríkismál í heimalandi þess sem um er rætt.[1] Móðurmálið er oft sagt hluti af manninum sjálfum og sjálfsvitund hans. Finnski rithöfundurinn, Antti Tuuri, sagði eitt sinn: „Á móðurmáli mínu get ég sagt hvað sem ég vil, en á öðrum málum aðeins það sem ég hef lært“.