Muhammadu Buhari
Fyrrum forseti Nígeríu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Muhammadu Buhari (f. 17. desember 1943) er nígerískur stjórnmálamaður og herforingi sem var forseti Nígeríu frá árinu 2015 til ársins 2023. Hann var áður forseti landsins frá 1983 til 1985. Á fyrri stjórnartíð sinni var Buhari leiðtogi herforingjastjórnar sem tók völdin í landinu eftir valdarán gegn forsetanum Shehu Shagari. Buhari var sjálfum steypt af stóli eftir um eitt og hálft ár í embætti.
Staðreyndir strax Forseti Nígeríu, Varaforseti ...
Muhammadu Buhari | |
---|---|
Forseti Nígeríu | |
Í embætti 29. maí 2015 – 29. maí 2023 | |
Varaforseti | Yemi Osinbajo |
Forveri | Goodluck Jonathan |
Eftirmaður | Bola Tinubu |
Í embætti 31. desember 1983 – 27. ágúst 1985 | |
Forveri | Shehu Shagari |
Eftirmaður | Ibrahim Babangida |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. desember 1943 (1943-12-17) (80 ára) Daura, Nígeríu |
Þjóðerni | Nígerískur |
Stjórnmálaflokkur | Allsherjarráð framfarasinna (2013–) |
Maki | Safinatu Yusuf (g. 1971; sk. 1988) Aisha Halilu (g. 1989) |
Börn | 10 |
Háskóli | Nígeríski herþjálfunarháskólinn Mons-kadetskólinn Stríðsháskóli Bandaríkjahers |
Vefsíða | Opinber heimasíða |
Loka
Buhari komst aftur til valda með lýðræðislegum hætti árið 2015 eftir að hafa unnið forsetakosningar á móti sitjandi forsetanum Goodluck Jonathan.[1] Hann tók við embætti þann 29. maí sama ár og vann endurkjör í forsetakosningum árið 2019.[2]