Mið-Austurlönd
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mið-Austurlönd er samheiti yfir svæði sem nær frá botni Miðjarðarhafsins, meðfram Rauðahafinu að Arabíuskaganum og áfram um Persaflóa að Indlandi. Mismunandi forsendur geta legið fyrir því hvaða lönd eru talin til Mið-Austurlanda. Saga mismunandi ríkja getur þannig gert það að verkum að þau eru talin til Mið-Austurlanda á meðan önnur hafa tengingu á grundvelli tungumáls, menningar eða trúar. Hefðbundið er hins vegar að eftirfarandi lönd teljist til Mið-Austurlanda:
Tyrkland, Sýrland, Líbanon, Írak, Íran, Palestína, Ísrael, Jórdanía, Egyptaland, Súdan, Líbýa, Sádí-Arabía, Kúveit, Jemen, Óman, Barein, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmin.
Túnis, Alsír og Marokkó voru öll áður fyrr tengd Frakklandi en hafa orðið náin Arabíu-ríkjunum bæði í kennd (e. sentiment) og utanríkisstefnu. Einnig gera landfræðilegar ástæður að verkum að Afganistan og Pakistan eru stundum flokkuð með og tengd við málefni í Mið-Austurlöndum.[1]
Menningarsvæði Mið-Austurlanda nær allt aftur til fornaldar og hefur haft mikil áhrif á menningarheim okkar í dag. Eins og gefur að skilja einkennist svæðið af gífurlegum fjölbreytileika sem hefur þó orðið töluvert fyrir barðinu á einföldun af hálfu Vesturlanda í umfjöllun sinni og nálgun við þau fjölmörgu samfélög sem þar er að finna.