Makaó
sérstjórnarhérað og borg í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Makaó (kínverska: 澳门; pinyin: Àomén; portúgalska: Macau) er borg í Kína. Borgin myndar samnefnt sérstjórnarhérað á sama máta og Hong Kong og er staðsett vestan megin við árósa Perlufljóts við Suður-Kínahaf. Hún er bæði minnsta (32,9 km²) og fámennasta (680.000 manns samkvæmt manntali 2020[1]) hérað landsins og þéttbýlasti staður Jarðar.
中華人民共和國澳門特別行政區 Região Administrativa Especial de Macau da República Popular da China'' | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: 義勇軍進行曲 | |
Höfuðborg | Makaó |
Opinbert tungumál | kínverska |
Stjórnarfar | Sérstjórnarhérað |
Forsætisráðherra | Ho Iat-Seng |
Stofnun | |
• Stjórn Portúgals | 1557 |
• Portúgölsk nýlenda | 1. desember 1887 |
• Fullveldisflutningur | 20. desember 1999 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
115,3 km² 73,7 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
682.800 21.340/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 40 millj. dala (115. sæti) |
• Á mann | 58.931 dalir (9. sæti) |
VÞL (2019) | 0.922 (17. sæti) |
Gjaldmiðill | Makaóísk pataka |
Tímabelti | UTC+8 |
Þjóðarlén | .mo |
Landsnúmer | ++853 |
Makaó var áður portúgölsk nýlenda. Portúgal fékk leyfi frá Mingveldinu árið 1557 til að koma sér þar upp verslunarstað. Portúgal greiddi leigu fyrir landið sem var áfram undir yfirráðum Kína fram til 1887, þegar það var gert að nýlendu með Pekingsamningi Kína og Portúgals. Nýlendan var undir stjórn Portúgals til 1999 þegar fullveldið var flutt til Kína. Makaó hefur síðan verið eitt af sérstjórnarhéruðum Kína, með stjórn- og hagkerfi sem eru aðskilin frá meginlandinu, samkvæmt hugmyndinni um „eitt land, tvö kerfi“. Einstök blanda portúgalskra og kínverskra áhrifa sem sjá má í arkitektúr sögulegrar miðborgar Makaó var skráð á Heimsminjaskrá UNESCO árið 2005.[2]
Upprunalega var Makaó dreifbýll eyjaklasi við ströndina. Landsvæðið er nú orðið að vinsælli ferðamannaborg og miðstöð ferðamennsku í kringum spilavíti. Fjárhættuspilaiðnaðurinn í Makaó er sjö sinnum stærri en í Las Vegas. Borgin er með eina hæstu vergu landsframleiðslu á mann í heimi.[3][4] Hún situr hátt á lista yfir lönd eftir vísitölu um þróun lífsgæða og er í fjórða sæti yfir lönd eftir lífslíkum.[5] Landsvæðið sem Makaó stendur á er mjög þéttbýlt; tveir þriðju hlutar landsins eru á landfyllingum.