Líffræði
vísindagrein sem fjallar um lífið / From Wikipedia, the free encyclopedia
Líffræði eða lífvísindi er sú vísindagrein sem fjallar um lífið. Allir þættir lífs eru rannsakaðir, allt frá efnasamsetningu lífvera að umhverfi þeirra og atferli. Einnig er fjallað um sögu lífs frá uppruna og þróun þess fram til okkar daga. Alþjóðlegt heiti greinarinnar, biologia, er komið úr forngrísku og er sett saman af orðinu bio, sem merkir líf, og viðliðnum logia, sem merkir meðal annars fræði.