Kosta Ríka
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kosta Ríka (spænska: Costa Rica, bókst. „Auðströndin“) er land í Mið-Ameríku með landamæri að Níkaragva í norðri og Panama í suðri, og strönd að Kyrrahafi í suðvestri (og Ekvador sunnan við Kókoseyju) og Karíbahafi í austri. Íbúar eru um 5 milljónir á landi sem þekur um 50.000 ferkílómetra. Um 350.000 búa í höfuðborginni, San José, en um 2 milljónir búa á höfuðborgarsvæðinu.
Lýðveldið Kosta Ríka | |
República de Costa Rica | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: ¡Pura vida! (spænska: „Þetta er lífið!“) | |
Þjóðsöngur: Noble patria, tu hermosa bandera | |
Höfuðborg | San José |
Opinbert tungumál | spænska (opinbert), (enska við ströndina) |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Rodrigo Chaves |
Sjálfstæði | frá Spáni |
• Yfirlýst | 15. september 1821 |
• Frá Fyrsta mexíkóska keisaradæminu | 1. júlí 1823 |
• Frá Sambandslýðveldi Mið-Ameríku | 1838 |
• Viðurkennt af Spáni | 10. maí 1850 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
126. sæti 51.100 km² 0,7 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
123. sæti 4.999.441 85/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 95,791 millj. dala (89. sæti) |
• Á mann | 18.651 dalir (77. sæti) |
VÞL (2018) | 0.794 (68. sæti) |
Gjaldmiðill | colón (CRC) |
Tímabelti | UTC-6 |
Þjóðarlén | .cr |
Landsnúmer | +506 |
Kosta Ríka er forsetalýðveldi. Landið er þekkt fyrir stöðugleika og menntað vinnuafl þar sem flestir íbúar tala ensku, auk spænsku. Kosta Ríka ver um 6,9% vergrar landsframleiðslu til menntunar (2016), en meðaltalið í heiminum er 4,4%. Efnahagslíf landsins var eitt sinn háð landbúnaði en byggist nú á fleiri stoðum, eins og fjármálaþjónustu, þjónustu við erlend fyrirtæki, lyfjaframleiðslu og visthæfri ferðamennsku. Mörg erlend fyrirtæki reka starfsstöðvar á fríverslunarsvæðum í Kosta Ríka þar sem þau njóta skattfríðinda.
Fyrir komu Spánverja var Kosta Ríka dreifbýlt land byggt nokkrum ólíkum frumbyggjaþjóðum. Það var lengi jaðarhérað í Nýja Spáni en fékk sjálfstæði frá Fyrsta mexíkóska keisaradæminu og varð síðan hluti af Sambandslýðveldi Mið-Ameríku. Landið lýsti formlega yfir sjálfstæði frá sambandslýðveldinu 1847. Kosta Ríka lagði her sinn niður með stjórnarskrárbreytingu 1949 í kjölfar skammvinnrar borgarastyrjaldar. Kosta Ríka er því eitt fárra landa í heiminum með engan her.
Kosta Ríka hefur lengi verið hátt skrifað í Vísitölu um þróun lífsgæða, í 68. sæti á heimsvísu og 5. sæti í Rómönsku Ameríku. Landið hefur líka verið nefnt af Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna sem dæmi um mjög þróað land miðað við önnur lönd á sama tekjubili. Kosta Ríka kemur betur út miðað við þróun og jöfnuð en önnur lönd í sama heimshluta.
Umhverfisstefna Kosta Ríka er framsækin. Landið er það eina sem uppfyllir öll fimm skilyrði sjálfbærrar þróunar sem Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sett fram.[1] Landið var í 42. sæti á heimsvísu og í 3. sæti í Ameríku á Umhverfisvísitölunni og var í efsta sæti á Happy Planet-vísitölunni sem mælir sjálfbærni. New Economics Foundation lýsti því yfir 2009 að landið væri það grænasta í heimi. Kosta Ríka stefnir að kolefnishlutleysi fyrir árið 2021.[2][3][4] Árið 2019 var 99,62% af orkunotkun landsins framleidd með umhverfisvænum hætti.[5][6]