Kersti Kaljulaid
Forseti Eistlands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kersti Kaljulaid (f. 30. desember 1969) er eistneskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti Eistlands, í embætti frá 10. október 2016. Hún er fyrsti kvenkyns þjóðhöfðingi Eistlands frá sjálfstæði landsins, auk þess að vera yngsti forseti í sögu landsins.
Kersti Kaljulaid | |
---|---|
Forseti Eistlands | |
Í embætti 10. október 2016 – 11. október 2021 | |
Forsætisráðherra | Taavi Rõivas Jüri Ratas Kaja Kallas |
Forveri | Toomas Hendrik Ilves |
Eftirmaður | Alar Karis |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 30. desember 1969 (1969-12-30) (54 ára) Tartu, Eistlandi |
Stjórnmálaflokkur | Föðurlandsflokkurinn (2001–2004) |
Maki | Georgi-Rene Maksimovski |
Börn | 4 |
Háskóli | Háskólinn í Tartu |
Starf | Stjórnmálamaður |
Kaljulaid var 46 ára þegar hún var kjörin forseti og hafði þá unnið hjá Endurskoðunarrétti Evrópusambandsins síðastliðin tólf ár. Hún var óvænt tilnefnd sem forsetaefni í september 2016 eftir að eistneska þinginu hafði þrisvar mistekist að koma sér saman um nýjan forseta. Eistland hafði þá verið forsetalaust í fimm vikur þar sem annað kjörtímabil sitjandi forsetans, Toomasar Hendriks Ilves, var runnið út og hann ókjörgengur til þriðja kjörtímabils. Kaljulaid var kjörin forseti af þinginu þann 3. október með 81 atkvæði af 101.[1]
Kaljulaid var lítið þekkt miðað við aðra frambjóðendur þegar stungið var upp á henni sem forseta.[2][3][4] Hún svaraði þeirri gagnrýni í viðtölum og í opnu bréfi til almennings með því að lofa að vera sýnileg um allt landið og eiga beinar samræður við Eistlendinga.[5] Í fyrstu skoðanakönnunum sem teknar voru eftir að hún varð forseti mældist Kaljulaid með stuðning 73% landsmanna.[6]
Árið 2021 ákvað ríkisstjórn Kaju Kallas forsætisráðherra að styðja Kaljulaid ekki til endurkjörs í forsetaembætti.[7] Kaljulaid hugðist engu að síður gefa kost á sér til annars kjörtímabils en henni tókst ekki að afla sér meðmæla nógu margra þingmanna til þess að vera kjörgeng í forsetakosningunum.[8]