Jean Monnet
Franskur embættismaður og einn af stofnendum Evrópusambandsins (1888-1979) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jean Omer Marie Gabriel Monnet (9. nóvember 1888 – 16. mars 1979) var franskur embættismaður, hagfræðingur og stjórnmálamaður sem talaði fyrir frjálsri verslun og alþjóðasamvinnu. Hann er gjarnan kallaður einn af „feðrum Evrópu“[1] vegna hlutverks síns í stofnun Evrópusambandsins. Ásamt Helmut Kohl og Jacques Delors er Monnet eini maðurinn sem hefur verið sæmdur heiðursnafnbótinni Heiðursborgari Evrópu.[2]
Staðreyndir strax Forseti aðalráðs Kola- og stálbandalags Evrópu, Forveri ...
Jean Monnet | |
---|---|
Forseti aðalráðs Kola- og stálbandalags Evrópu | |
Í embætti 10. ágúst 1952 – 3. júní 1955 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | René Mayer |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 9. nóvember 1888 Cognac, Charente, Frakklandi |
Látinn | 16. mars 1979 (90 ára) Houjarray, Bazoches-sur-Guyonne, Frakklandi |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn |
Maki | Silvia de Bondini (g. 1934) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Loka