Jónas Hallgrímsson
íslenskt skáld (1807-1845) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jónas Hallgrímsson (16. nóvember 1807 að Hrauni í Öxnadal – 26. maí 1845 í Kaupmannahöfn) var íslenskt skáld og náttúrufræðingur. Hann var afkastamikill rithöfundur, ljóðskáld og þýðandi og einn af stofnendum tímaritsins Fjölnis. Hann dó vegna blóðeitrunar, sem stafaði af fótbroti sem hann hlaut við að detta niður stiga.