Jóhannes 23.
Páfi kaþólsku kirkjunnar frá 1958 til 1963 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhannes 23. (25. nóvember 1881 – 3. júní 1963), fæddur undir nafninu Angelo Giuseppe Roncalli, var páfi kaþólsku kirkjunnar frá 1958 til 1963. Þrátt fyrir tiltölulega stutta páfatíð sína setti Jóhannes mark sitt á sögu kaþólsku kirkjunnar með því að kalla saman síðara Vatíkanþingið, sem átti eftir að koma á ýmsum umbótum og breytingum á skipulagi hennar. Jóhannes var stundum kallaður „góði páfinn“ (ítalska: Il Papa Buono) vegna ljúfmennsku sinnar og alþýðleika.
Staðreyndir strax Páfi, Forveri ...
Jóhannes 23. | |
---|---|
Páfi | |
Í embætti 28. október 1958 – 3. júní 1963 | |
Forveri | Píus 12. |
Eftirmaður | Páll 6. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. nóvember 1881 Sotto il Monte, Bergamo, Ítalíu |
Látinn | 3. júní 1963 (81 árs) Páfahöllinni, Vatíkaninu |
Þjóðerni | Ítalskur (með vatíkanskan ríkisborgararétt) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Undirskrift |
Loka