Fjarðabyggð
Sveitarfélag á Mið-Austurlandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fjarðabyggð er sveitarfélag á Mið-Austurlandi. Það varð til 7. júní 1998 við sameiningu Neskaupstaðar, Eskifjarðarkaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps. 8. október 2005 var samþykkt í kosningum að sameina Fjarðabyggð, Mjóafjarðarhrepp, Austurbyggð og Fáskrúðsfjarðarhrepp undir merkjum Fjarðabyggðar og tók sú sameining gildi 9. júní 2006 í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna 2006. Í júní 2018 var síðan samþykkt sameining Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: Heldur mikill auglýsingabragur á þessum texta |
Fjarðabyggð | |
---|---|
Hnit: 65°2′0″N 14°13′0″V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðausturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Jóna Árný Þórðardóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 1.615 km2 |
• Sæti | 21. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 5.163 |
• Sæti | 11. sæti |
• Þéttleiki | 3,2/km2 |
Póstnúmer | 715, 730, 735, 740, 750, 755, 760 |
Sveitarfélagsnúmer | 7300 |
Vefsíða | fjardabyggd |
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.