Bjarni Benediktsson (f. 1970)
íslenskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bjarni Benediktsson (f. 26. janúar 1970) er núverandi forsætisráðherra Íslands, fyrrum utanríkisráðherra Íslands, fyrrum fjármálaráðherra Íslands[1] og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson | |
Bjarni árið 2023 | |
Fæðingardagur: | 26. janúar 1970 (1970-01-26) (54 ára) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
1. þingmaður Suðvesturkjördæmis | |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
2003-2009 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2009-2013 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. |
2013-2016 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2016-2017 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2017-2021 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2021- | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2003-2007 | Formaður allsherjarnefndar |
2003-2005 | Formaður Íslandsdeildar VES-þingsins |
2007-2009 | Formaður utanríkismálanefndar |
2013-2017 | Fjármálaráðherra |
2017 | Forsætisráðherra |
2017-2023 | Fjármálaráðherra |
2023-2024 | Utanríkisráðherra |
2024- | Forsætisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Bjarni hefur verið formaður Sjálfstæðisflokkins og oddviti í Suðvesturkjördæmi frá árinu 2009 og setið á Alþingi frá 2003. Bjarni hefur fimm sinnum haft betur gegn keppinautum á landsfundum Sjálfstæðisflokksins.[2][3][4][5][6]
Bjarni er stundum kallaður „Teflon-Bjarni“ vegna fjölda stjórnmálahneyksla sem hann hefur staðið af sér án þess að glata stöðu sinni sem einn valdamesti stjórnmálamaður á Íslandi.[7][8] Bjarni er annar ráðherrann í íslenskri stjórnmálasögu sem hefur gegnt öllum þremur helstu ráðherraembættum; forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra.