Antoine Augustin Cournot
franskur heimspekingur, stærðfræðingur og hagfræðingur (1801-1877) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Antoine-Augustin Cournot (28. agúst 1801 – 31. mars 1877) var franskur heimspekingur og stærðfræðingur sem átti gríðarlegan þátt í þróun hagfræðinnar sem fræðigrein. Cournot var fyrsti hagfræðingurinn sem, með sérþekkingu á báðum greinum, beitti stærðfræði við meðferð hagfæði.[1] Cournot ásamt Johann Heinrich von Thünen eru taldnir fyrstu stærðfræðilegu hagfræðingarnir.[2] Hann naut virðingar í lifanda lífi, en það var ekki fyrr en áhrif hans á hagfræðina komu ekki fram fyrr en eftir andlát hans. Hann er jafnan talinn einn mikilvægasti forgöngumaður jaðarbyltingar Nýklassískrar hagfræði.
Cournot var virtur og viðurkenndur vísindamaður meðan hann lifði en það var ekki tekið mark á rannsóknum hans og skrifum. Það var fyrst eftir andlát hans að áhrif hans á þróun hagfræðinnar komu fram.