Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, skammstafað AGS (e. International Monetary Fund; skammstafað IMF) er alþjóðastofnun, sem hefur það hlutverk að auka samvinnu milli ríkja og tryggja stöðugleika alþjóðlega fjármálakerfisins með því að fylgjast með gengi gjaldmiðla og greiðslujöfnuði milli ríkja heims. Stofnunin hefur það einnig að markmiði að minnka atvinnuleysi og auka hagvöxt.[2] Stofnunin veitir aðildaríkjum sínum ráðgjöf og lán til niðurgreiðslu skulda.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn | |
---|---|
Skammstöfun | AGS |
Stofnun | 1945; fyrir 79 árum (1945) |
Gerð | Alþjóðleg fjármálastofnun |
Höfuðstöðvar | Washington, D.C., Bandaríkjunum |
Hnit | 38°53′56″N 77°2′39″V |
Opinber tungumál | Enska |
Framkvæmdastjóri | Kristalina Georgieva (síðan 2019[1]) |
Móðurfélag | Sameinuðu þjóðirnar |
Vefsíða | www.imf.org |
Alls eru 187 lönd aðilar að sjóðnum, næstum því jafn mörg og í Sameinuðu þjóðunum. Höfuðstöðvar hans eru í Washingtonborg í Bandaríkjunum. Hefð er fyrir því að stjórnarformaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé evrópskur og bankastjóri Alþjóðabankans, systurstofnunar IMF, bandarískur. Núverandi framkvæmdarstjóri sjóðsins er búlgarski hagfræðingurinn Kristalina Georgieva en hún tók við af Christine Lagarde sem lét af störfum árið 2019 til að taka við stórn evrópska seðlabankans.