Abdúl Hamid 2.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Abdúl Hamid 2. (عبد الحميد ثانی á Ottómantyrknesku, Abdülhamit á nútímatyrknesku) (21. september 1842 – 10. febrúar 1918) var 34. soldán Tyrkjaveldis og sá síðasti sem réð yfir ríkinu með alræðisvaldi.[1] Tyrkjaveldi var í stöðugri hnignun á valdatíma hans. Hann réð frá þeim 31. ágúst 1876 þar til honum var steypt af stóli stuttu eftir Ungtyrkjabyltingu ársins 1908, þann 27. apríl 1909. Samkvæmt samkomulagi við hina lýðveldissinnuðu Ungtyrki tók hann aftur upp stjórnarskrá sem hann hafði upphaflega komið í gildi árið 1876.[2] Þá hafði stjórnarskráin þótt til marks um umbótasinnaða stjórnarhætti Abdúl Hamid. Hann hafði afnumið hana og leyst upp þing Tyrkjaveldis árið 1878 til að sporna við vestrænum áhrifum á Tyrkjaveldi og ráðið sem einvaldur næstu þrjá áratugina.
| ||||
Abdúl Hamid 2. السلطان عبد الحميد الثاني | ||||
Ríkisár | 31. ágúst 1876 – 27. apríl 1909 | |||
Skírnarnafn | Abdü’l-Ḥamīd-i sânî | |||
Fæddur | 21. september 1842 | |||
Topkapı-höll, Istanbúl | ||||
Dáinn | 10. febrúar 1918 (75 ára) | |||
Beylerbeyi-höll, Istanbúl | ||||
Gröf | Çemberlitaş, Fatih | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Abdúl Mejid 1. | |||
Móðir | Tirimüjgan Kadın | |||
Börn | 17 |