William Walker
From Wikipedia, the free encyclopedia
William Walker (8. maí 1824 – 12. september 1860) var bandarískur ævintýramaður og hermaður sem varð forseti Níkaragva frá 1856 til 1857. Hann ætlaði að ná undir sig allri Mið-Ameríku en mistókst. Hann var tekinn af lífi af aftökusveit árið 1860 í Hondúras.
Staðreyndir strax Forseti Níkaragva (óviðurkenndur), Forveri ...
William Walker | |
---|---|
Forseti Níkaragva (óviðurkenndur) | |
Í embætti 12. júlí 1856 – 1. maí 1857 | |
Forveri | Patricio Rivas |
Eftirmaður | Máximo Jerez og Tomás Martínez |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. maí 1824 Nashville, Tennessee, Bandaríkjunum |
Látinn | 12. september 1860 (36 ára) Trujillo, Hondúras |
Dánarorsök | Tekinn af lífi af skotsveit |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Háskóli | Háskólinn í Nashville Edinborgarháskóli Pennsylvaníuháskóli Háskólinn í Heidelberg |
Starf | Hermaður |
Undirskrift |
Loka
Walker fæddist inn í eina af betri fjölskyldum í Nashville, Tennessee, og var undrabarn. Hann útskrifaðist úr Háskólanum í Nashville fjórtán ára gamall með hæstu einkunn. Tuttugu og fimm ára gamall hafði hann lokið meistaragráðu í læknisfræði og lögfræði og var löggildur læknir og lögfræðingur. Hann vann einnig útgefandi og blaðamaður.