William Rehnquist
Forseti hæstaréttar Bandaríkjanna (1924-2005) / From Wikipedia, the free encyclopedia
William Hubbs Rehnquist (f. 1. október 1924, d. 3. september 2005) var bandarískur lögfræðingur og hæstaréttardómari. Rehnquist var 16. forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna. Rehnquist var til hægri í félags- og stjórnmálum og þótti íhaldssamur í túlkun sinni á lögum og stjórnarskrá Bandaríkjanna. Í lagatúlkun sinni lagði hann mikla áherslu á tíunda viðauka stjórnarskrárinnar sem takmarkar valdsvið alríkisins.
Staðreyndir strax Forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna, Skipaður af ...
William Rehnquist | |
---|---|
Forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna | |
Í embætti 25. september 1986 – 3. september 2005 | |
Skipaður af | Ronald Reagan |
Forveri | Warren E. Burger |
Eftirmaður | John G. Roberts |
Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna | |
Í embætti 15. desember 1971 – 26. september 1986 | |
Skipaður af | Richard Nixon |
Forveri | John Marshall Harlan II |
Eftirmaður | Antonin Scalia |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. október 1924 Milwaukee, Wisconsin, Bandaríkjunum |
Látinn | 3. september 2005 (80 ára) Arlington, Virginíu, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Nan Cornell (g. 1953; d. 1991) |
Börn | 3 |
Háskóli | Stanford-háskóli Harvard-háskóli |
Starf | Lögfræðingur, dómari |
Undirskrift |
Loka