Victor Hugo
Franskur rithöfundur, skáld og stjórnmálamaður (1802–1885) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Victor Hugo (26. febrúar 1802, Besançon, Frakklandi – 22. maí 1885, París) var franskur ljóða-, skáldsagna- og leikritahöfundur og einn af áhrifamestu skáldum frönsku rómantíkurinnar. Þekktustu verk hans eru Vesalingarnir (Les Misérables) og Maríukirkjan í París (Notre-Dame de Paris). Hann var íhaldssamur í æsku en varð síðar mikill stuðningsmaður lýðveldisstefnu. Verk hans snertu á helstu málefnum og stefnum ríkjandi í stjórnmálum og list á æviferli hans.
Staðreyndir strax Fæddur:, Látinn: ...
Victor Hugo árið 1875. | |
Fæddur: | 26. febrúar 1802 Besançon, Doubs, Frakklandi |
---|---|
Látinn: | 22. maí 1885 (83 ára) París, Frakklandi |
Starf/staða: | Rithöfundur, stjórnmálamaður |
Þjóðerni: | Franskur |
Bókmenntastefna: | Rómantík |
Þekktasta verk: | Maríukirkjan í París (1831) Vesalingarnir (1862) |
Maki/ar: | Adèle Foucher (g. 1822; d. 1868) |
Börn: | Léopold Victor Hugo Léopoldine Hugo Charles Hugo François-Victor Hugo Adèle Hugo |
Undirskrift: |
Loka