Tékkland
land í Mið-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tékkland (tékkneska: Česko; opinberlega Lýðveldið Tékkland, tékkneska: Česká republika) er landlukt ríki í Mið-Evrópu og vestasta land gömlu austantjaldsríkjanna. Landið var stofnað 1. janúar 1993 þegar Tékkóslóvakíu var skipt í tvo hluta, Tékkland og Slóvakíu. Höfuðborgin er Prag og er hún jafnframt stærsta borg landsins.
Lýðveldið Tékkland | |
Česká republika | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Pravda vítězí (tékkneska) Sannleikurinn lifir) | |
Þjóðsöngur: Kde domov můj | |
Höfuðborg | Prag |
Opinbert tungumál | Tékkneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Petr Pavel |
Forsætisráðherra | Petr Fiala |
Sjálfstæði | |
• Tékkóslóvakía | 28. október 1918 |
• Aðskilnaður | 1. janúar 1993 |
Evrópusambandsaðild | 1. maí 2004 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
115. sæti 78.871 km² 2,12 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
86. sæti 10.701.777 136/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 432,346 millj. dala (36. sæti) |
• Á mann | 40.585 dalir (34. sæti) |
VÞL (2019) | 0.900 (27. sæti) |
Gjaldmiðill | Króna (CZK) |
Tímabelti | UTC+1 (+2 á sumrin) |
Þjóðarlén | .cz |
Landsnúmer | +420 |
Tékkland er nánast miðsvæðis í Mið-Evrópu og á sér að miklu leyti náttúruleg landamæri í formi fjallgarða. Í vestri er Þýskaland, en Eirfjöllin (Krušné hory) og Bæheimsskógur (Šumava) skilja þar á milli. Í norðri er Pólland en þar mynda Súdetafjöllin (Sudety) og Risafjöllin (Krkonoše) náttúruleg landamæri. Í austri er Slóvakía en landamærin liggja um Karpatafjöll. Í suðri er svo Austurríki. Tékklandi er gjarnan skipt í þrjá meginhluta: Bæheim í vestri, Mæri í austri og syðsta hluti Slésíu í norðaustri. Í höfninni í Hamborg er stór hafnarbakki, 30 þúsund m2 að stærð, sem tilheyrir Tékklandi. Bakkinn kallast Moldárhöfn (Vltavský přístav). Hann var hluti af Versalasamningnum sem kvað á um að Tékkland skyldi eiga aðgang að hafnaraðstöðu í Hamborg, þaðan sem hægt er að sigla niður Saxelfi alla leið til Bæheims. Samningurinn gildir í 99 ár og rennur út árið 2028.