Torah
From Wikipedia, the free encyclopedia
Torah (תורה) er hebreska og þýðir "fræðsla," "kenning," eða "lögmál." Það er mikilvægasta rit í Gyðingdómi. Með hugtakinu Torah er oftast átt við fyrsta hluta Tanakh, það er fyrstu fimm bækur hebresku biblíunnar. Hugtakið er stundum notað sem almennt hugtak yfir öll helgirit Gyðingdóms og einnig munlega hefð. Kristnir guðfræðingar íslenska Torah venjulega sem "lögmálið".
Nöfn fyrstu fimm bókana á hebresku eru svo:
- בראשית, Bereishit: "Í upphafi skapaði...", 1. Mósebók
- שמות, Shemot: "Þessi eru nöfn...", 2. Mósebók
- ויקרא, Vayikra: "Drottinn kallaði...", 3. Mósebók
- במדבר, Bamidbar: "Drottinn talaði...", 4. Mósebók
- (דברים, Devarim: "Þessi eru þau orð..", 5. Mósebók
Torah er einnig þekkt sem Mósebækurnar eða fimmbókaritið sem upphaflega var átt við þær hirslur sem geymdu bókarollurnar fimm.
Fyrir trúaða Gyðinga er Torah venjulega álitin bókstafleg orð Guðs eins og hann opinberaði þau fyrir Móses.