Snillingur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Snillingur (á latínu: genius) er manneskja með óvenjulega andlega hæfileika og gáfur, svokallaða snilligáfu. Engin vísindaleg skilgreining er til á hugtakinu, sem á sér rætur aftur í fornöld, og deilt er um merkingu þess en eigi að síður er snillingshugtakið mikið notað í margháttuðu samhengi, ekki síst síðan á nítjándu öld.