Skriðdýr
From Wikipedia, the free encyclopedia
Skriðdýr (fræðiheiti: Reptilia) eru flokkur dýra af undirfylkingu hryggdýra. Skriðdýr eru líknarbelgsdýr, þar sem fóstur þeirra eru umlukin líknarbelg. Flestar tegundir skriðdýra verpa eggjum, en ýmsar tegundir hreisturdýra eiga lifandi afkvæmi. Flestar tegundirnar þurfa á hita að halda úr umhverfinu þar sem efnaskipti líkamans framleiða ekki nægan hita til að halda stöðugum líkamshita, leðurskjaldbakan er þó undantekning. Þetta gerir það að verkum að skriðdýr eru algengust í hitabeltinu. Skriðdýrafræði er sú vísindagrein sem fæst við rannsóknir á skriðdýrum og froskdýrum.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Ættbálkar ...
Skriðdýr | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Landskjaldbaka | ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Ættbálkar | ||||||||
Yfirættbálkur Risaeðlur (Dinosauria) | ||||||||
Loka