Pólska
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pólska (język polski) er slavneskt indóevrópskt tungumál. Það er opinbert tungumál í Póllandi og er eitt mest talaða vesturslavenska tungumálið. Pólska er rituð með latnesku letri með fáeinum stöfum í viðbót. Málið er talað um mest allt Pólland. Elstu textar eru frá 12. öld. Bókstafir sem er að finna í pólska ritmálinu en finnast ekki í því íslenska: ą, ć, ę, ł, ń, ś, ź, ż. Föll eru sjö en ásamt þeim fjórum sem við þekkjum úr íslensku eru ávarpsfall, staðarfall og tækisfall. Nefnifall og ávarpsfall falla oft saman. Sagnorð beygjast í persónum og tölum.
Staðreyndir strax Pólska język polski, Opinber staða ...
Pólska język polski | ||
---|---|---|
Málsvæði | Pólland | |
Heimshluti | Austur-Evrópa | |
Fjöldi málhafa | 50 milljónir | |
Sæti | 25 | |
Ætt | Indóevrópskt | |
Skrifletur | Pólska stafrófið | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Pólland Evrópusambandið | |
Stýrt af | Pólska málráðinu | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | pl | |
ISO 639-2 | pol | |
SIL | POL | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka