Otto von Habsburg
From Wikipedia, the free encyclopedia
Otto von Habsburg (fullt nafn á þýsku: Franz Joseph Otto Robert Maria Anton Karl Max Heinrich Sixtus Xaver Felix Renatus Ludwig Gaetan Pius Ignatius, fullt nafn á ungversku: Ferenc József Ottó Robert Mária Anton Károly Max Heinrich Sixtus Xaver Felix Renatus Ludwig Gaetan Pius Ignác; 20. nóvember 1912 – 4. júlí 2011) var síðasti krónprins austurrísk-ungverska keisaradæmisins. Faðir hans, Karl, var síðasti keisari Austurríkis og síðasti konungur Ungverjalands.
Otto von Habsburg | |
---|---|
Fæddur | 20. nóvember 1912 |
Dáinn | 4. júlí 2011 (98 ára) Pöcking, Þýskalandi |
Þjóðerni | Austurrískur |
Flokkur | Kristilega sósíalsambandið |
Maki | Regína af Sachsen-Meiningen (g. 1951; d. 2010) |
Börn | 7 |
Foreldrar | Karl 1. Austurríkiskeisari og Zita af Bourbon-Parma |
Undirskrift | |
Þar sem keisaradæmið var leyst upp þegar Otto var barn ólst hann að mestu upp í útlegð frá heimalandinu. Hann varð síðar virkur í evrópskum stjórnmálum og varð einn helsti forsvarsmaður hugmyndarinnar um sameinaða Evrópu. Hann sat á Evrópuþinginu frá 1979 til 1999 fyrir Kristilega sósíalsambandið, flokk íhaldsmanna í Bæjaralandi.