Orrustan við Dybbøl
From Wikipedia, the free encyclopedia
Orrustan við Dybbøl (danska: Slaget ved Dybbøl) var meginorrusta síðara Slésvíkurstríðsins. Stríðið hófst 1. febrúar 1864 og stóð yfir til 30. október sama ár. Danir biðu afgerandi ósigur í stríðinu gegn bandalagi Prússa og Austurríkis. Meginátakamál stríðsins voru um yfirráð yfir héraðinu Slésvík. Danir höfðu árið 1863 tekið skref í átt að frekari innlimun Slésvíks inn í danska konungsveldið með nýrri stjórnarskrá sem nefnd var nóvemberstjórnarskráin. Sú stjórnarskrá braut á sáttmála sem hafði náðst í kjölfar fyrra Slésvíkurstríðsins 1848-1852 varðandi þýsku héruðin innan Danmerkur.
Staðreyndir strax Dagsetning, Staðsetning ...
Orrustan við Dybbøl | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af seinna Slésvíkurstríðinu | |||||||
Málverk af orrustunni við Dybbøl eftir Jørgen Valentin Sonne | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
Prússland | Danmörk | ||||||
Leiðtogar | |||||||
Friðrik Karl prins | Georg Gerlach hershöfðingi | ||||||
Fjöldi hermanna | |||||||
11.000 (fyrsta atlagan) 26.000 (í varaliði) 126 byssur[1] |
5.000 (í varnarliðinu) 6.000 (í varaliði) 66 byssur 11 sprengjuvörpur[2] 1 járnklætt herskip [3] | ||||||
Mannfall og tjón | |||||||
263 drepnir 909 særðir 29 týndir Alls: 1.201 |
671 drepnir 987 særðir 3.534 týndir Alls: 5.192 |
Loka