Níkos Krístoðúlíðís
8. og núverandi forseti Kýpur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Níkos Krístoðúlíðís (grískt letur: Νίκος Χριστοδουλίδης; f. 6. desember 1973) er kýpverskur háskólaprófessor, ríkiserindreki og stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Kýpur. Hann var kjörinn forseti þann 12. febrúar árið 2023.
Staðreyndir strax Forseti Kýpur, Forveri ...
Níkos Krístoðúlíðís Νίκος Χριστοδουλίδης | |
---|---|
Forseti Kýpur | |
Núverandi | |
Tók við embætti 28. febrúar 2023 | |
Forveri | Níkos Anastasíaðís |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. september 1973 (1973-09-27) (50 ára) Geroskípú, Kýpur |
Þjóðerni | Kýpverskur (grískur) |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn DISY (fyrir 2023) |
Maki | Fílíppa Karsera |
Börn | 4 |
Háskóli | Queens College, CUNY New York-háskóli Háskóli Möltu Háskólinn í Aþenu |
Undirskrift |
Loka
Krístoðúlíðís var útnefndur talsmaður ríkisstjórnar Kýpur þann 11. apríl 2014. Hann var útnefndur utanríkisráðherra í annarri ríkisstjórn Níkosar Anastasíaðís þann 1. mars 2018 og gegndi því embætti til 11. janúar 2022. Krístoðúlíðís bauð sig fram sem óháður frambjóðandi í forsetakosningum Kýpur árið 2023 og vann sigur, en honum hafði þá verið vísað úr stjórnarflokknum DISY.