Níkolaj Búkharín
Sovéskur stjórnmálamaður (1888-1938) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Níkolaj Ívanovítsj Búkharín (rússneska: Никола́й Ива́нович Буха́рин; 9. október 1888 – 15. mars 1938) var rússneskur byltingarmaður og sovéskur stjórnmálamaður.
Staðreyndir strax Aðalritari framkvæmdanefndar Alþjóðasamtaka kommúnista, Forveri ...
Níkolaj Búkharín Никола́й Буха́рин | |
---|---|
Aðalritari framkvæmdanefndar Alþjóðasamtaka kommúnista | |
Í embætti Nóvember 1926 – apríl 1929 | |
Forveri | Grígoríj Zínovjev |
Eftirmaður | Vjatsjeslav Molotov |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 9. október 1888 Moskvu, rússneska keisaradæminu |
Látinn | 15. mars 1938 (49 ára) Moskvu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Dánarorsök | Tekinn af lífi fyrir skotsveit |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna (1918–1937) Sósíaldemókrataflokkur Rússlands (Bolsévikar) (1906–1918) |
Maki | Nadezhda Lúkín Esfír' Gúrvítsj Anna Larína |
Börn | 2 |
Háskóli | Keisaralegi háskólinn í Moskvu (1911) |
Loka
Búkharín tók þátt í rússnesku byltingunni árið 1917 og varð einn af áhrifamestu stjórnmálamönnunum á upphafsárum Sovétríkjanna. Eftir dauða Leníns árið 1924 varð Búkharín bandamaður Jósefs Stalín og hjálpaði honum að jaðarsetja keppinauta sína innan Kommúnistaflokksins.
Ágreiningur jókst hins vegar milli Stalíns og Búkharíns á næstu árum sem leiddi til þess að Stalín lét reka Búkharín úr stjórn flokksins. Árið 1938 varð Búkharín svo fyrir barðinu á hreinsunum Stalíns og var handtekinn, sakaður um landráð og tekinn af lífi eftir sýndarréttarhöld.