María Antonetta
frakklandsdrottning frá 1774 til 1792 / From Wikipedia, the free encyclopedia
María Antonía Jósefa Jóhanna von Habsburg-Lothringen, (2. nóvember 1755 – 16. október 1793) betur þekkt í heimssögunni sem Marie Antoinette, var drottning Frakklands frá 10. maí 1774 til 21. september 1792. Fædd sem hertogaynja Austurríkis og varð síðar drottning Frakklands og Navarre. Hún var dóttir hins heilaga rómanska keisara Frans I og Maríu Teresu af Austurríki. Hún var gift Loðvíki XVI, Frakklandskonungi og var móðir „týnda“ ríkisarfans Loðvíks XVII. Hún er helst þekkt fyrir að vera hin léttúðuga drottning sem eyddi miklu fé í skemmtanir og fjárhættuspil og fyrir að hafa sagt: „Gefum þeim kökur“ sem hún gerði reyndar ekki. Dauðadagi hennar er einnig vel þekktur en hún var hálshöggvin með fallöxinni í frönsku byltingunni eftir að hafa verið dæmd fyrir landráð og fleiri glæpi.
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
| ||||
Marie Antoinette | ||||
Ríkisár | 10. maí 1774 – 21. september 1792 | |||
Skírnarnafn | Maria Antonia Josepha Johanna von Habsburg-Lothringen | |||
Fædd | 2. nóvember 1755 | |||
Vín, Heilaga rómverska ríkinu | ||||
Dáin | 16. október 1793 (37 ára) | |||
París, Frakklandi | ||||
Gröf | Basilique royale de Saint-Denis, París | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Frans 1. | |||
Móðir | María Teresa af Austurríki | |||
Konungur | Loðvík 16. | |||
Börn | María Teresa, Loðvík Jósef, Loðvík Karl, Soffía |